Fórum í Íkea í gær, fyrsta ferðin hennar Júlíu í það annars ágæta Svíabæli, þar sem við höfum markvisst alið barnið okkar upp í efnishyggju og græðgi þá fór hún strax að suða í okkur um að kaupa eitthvað handa sér, við eins undirgefin og buguð og við erum, að sjálfsögðu létum undan þrýstingi hennar (til að losna við suðið í henni), hún fékk að velja sér “bangsa”, steinsofnaði svo með hann í fanginu þegar heim var komið. Þess má svo til gamans geta að honum var gefið það frumlega nafn: Kalli Kónguló, eins og í laginu.
Svo kom Rósa frænka í heimsókn, hún knúsaði og kjassaði litlu frænku sína svo um munaði, við teljum hugsanlegar líkur á að Júlía hafi því krækt í allar þær leiksólapestir sem um getur s.s. mislinga, rauðuhunda, njálg, lús, hlaupabólu, kúabólu, ebólu, horínös og allar þessar blessuðu pestir sem annars eru að herja á þessi litlu grey, spurning hvort fuglaflesna sé inní þessum pakka líka?
Nú svo tók hún sig til og perlaði stofugólfið okkar af miklum móð, bjó meðal annars til skrímsli úr perlum og apavél, svo leyfði hún skrímslinu að búa í apavélinni…. “…og skrímslið á að eiga heima í apavélinni!”
Nú sú stutta gerði sér svo lítið fyrir snaraði sér inn í eldhús og galdraði fram þessa glimrandi fínu kanilsnúða með diggri aðstoð Sunnu frænku.
No tags

Gríshildur · 31. 10 '05 #303 at 17:44
Júlía á örugglega eftir að elska þennan sæta bangsa og drusla honum með sér út um allt