Gullmolar…
Hér er hugmyndin að skrá niður þá mola sem upp úr smjörvunum okkar renna, þetta er meira gert fyrir þær sjálfar seinna meir og þykir okkur kjörið að deila þeim með ykkur og leyfa fleirum að hafa gaman af.
27.03.2010
Mamma: "Emilía vilt þú kannski leggja á borðið?"
Emilía: "Hahhhaha nei ég er ekki mamma"
***
26.03.2010
Emilía fann pening undir borði og er alveg alsæl
Mamma: "Hvað ætlarðu svo að gera við peninginn?"
Emilía: "Setja hann í spariskóna!"
(sparibaukur/spariskór potató/poteitó)
***
25.01.2010
Emilía: "Þetta eru mömmu gleraugu."
Pabbi: "Nei, þetta eru pabba gleraugu."
Júlía: "Já, mamma notar ekki gleraugu af því að hún er ung!"
***
22.11.2009
Stelpurnar eru búnar að vera ofuróþekkar allan daginn, (það er ekki gott fyrir lítil börn að fá köku í morgunmat)
Pabbi: "Júlía ef þú hlýðir mér ekki undir eins þá set ég þig upp í herbergi og loka hurðinni!"
Júlía: "Þú getur það ekki, það er engin hurð"
(Sem er alveg rétt, það er engin hurð á herberginu þeirra)
***
nóv.2009
"Húsið er að prumpa igen"
Emilía þegar nágranninn byrjar að bora í eldhúsinu í annað skiptið þann daginn.
***
nóv.2009
Júlía (að teikna): "Mamma veistu hvað þetta litla er? Þetta er hárið á pabba!"
***
okt.2009
Í bónus, mamma er að fela sig bakvið hrökkbrauðsrekkann.
Pabbi: Jæja, nú er mamma týnd, eigum við að reyna finna okkur nýja mömmu hérna í búðinni?
Júlía: "Nei, þá talar hún ekki íslensku!"
Gott að vita maður er eitthvað metinn á heimilinu, jafnvel þó ekki nema fyrir það að maður talar íslensku…
***
14.03.2009
Mamma: "Á morgun þá förum við í ballett"
Júlía: "Jaaaá, núna?"
Mamma: "Nei, á morgun"
Júlía: "En það ER morgun"
Mamma: "Nei Á morgun er eftir eina nótt, imorgon á sænsku, núna er bara morgun"
Júlía: "Já, það ER núna morgon og morgun, drífum okkur"
Mamma: "Nei, ég er að meina á sunnudaginn, í dag er laugardagur."
Júlía: "NEEEEI ÞAÐ ER SUNNUDAGUR, PABBI SAGÐI ÞAÐ!"
Mamma reynir að skipta um umræðuefni en samræðan heldur engu að síður áfram á þessum nótum í c.a. fimm mínútur
***
03.02.2009
Júlía: "Ég er þriggja ára!"
Pabbi: "Já en hvað er pabbi gamall?"
Júlía: "HUNDRAÐ og þriggja ára
Pabba fannst þetta alls ekkert sniðugt
***
16.1.2009
Mamma: Á ég svo að segja þér sögu eða lesa á eftir?
Júlía: "Umm, segja sögu"
Mamma: "Ok, hvaða sögu viltu heyra?"
Júlía: "Ummm, tveir úlfar"
Pabbi var semsagt að segja söguna Úlfur úlfur kvöldið áður sem eru jú tveir úlfar.
***
26.12.2008
"Svona syngur maður þegar maður er reiður"
Júlía að hlusta á Pink syngja "So what I am a rockstar" sem er jú afar reiðilegt.
***
2.12.2008
Mamma er búin að biðja vini sína, Atla og Ásdísi, um að taka tösku til Íslands með jólagjöfum handa frændfólkinu.
Atli: "Er eitthvað þarna handa mér?"
Júlía: "Ömmmmm, kannski seinna!"
(Greinilega búin að læra af mömmu og pabba hvernig maður segir nei en lágmarkar engu að síður vonbrigðin)
***
1.11.2008
Mamma: "Júlía, hvað kanntu að telja hátt?"
Júlía: "EEEINN!!! TVEEEIIR!!! ÞRÍÍÍÍR!!! …"
***
13.10.2008
Júlía prumpar hátt og snjallt
Júlía: "Affakið"
Mamma: "Allt í lagi Júlía mín"
Júlía: Pabbi! það er PRUMPULYKT af mér!"
Svona ef það skyldi eitthvað hafa farið fram hjá honum.
***
02.10.2008
Júlía er að plokka ber af berjarunna á leiðinni heim úr leikskólanum.
Júlía: "Tanja (fóstran hennar) borðaði svona ber í dag þegar við vorum í göngutúr."
Mamma: "Já, vilt þú þá ekki smakka?"
Júlía: "Hmm, jú…"
Lætur Emilíu hafa berið. "Emilía á að smakka!"
Það er greinilega vissara að prófa svona hluti á litlu systur fyrst.
***
06.2008-…
"Mamma má ég horfa á barnabirnið?"
Júlía kallar barnaefnið barnabirnið, kannski eitthvað að slá saman barnaefni við nafnið Baldvin Birnir (sem er frændi hennar)
***
04.08.2008
Mamma er eitthvað í tölvunni og Júlía kemur inn.
Júlía: „Hvað ertu að gera mamma?“
Mamma: „Athuga hvað verður langt fyrir mig í vinnuna þegar ég byrja að vinna.“
Júlía: „Neee, pabbi vinnur.“
Mamma: „Já og bráðum fer mamma líka að vinna.“
Júlía: „Ahahhahaha, konur að vinna.“
Það þarf greinilega að kenna Júlíunni eitt og annað um jafnrétti.
***
23.07.2008
Júlía fer inn á klósett þar sem pabbi er að pissa.
Júlía: „Haahahahaaha, pabbi er með snippi!“
(Tippi er snippet á sænsku)
***
09.06.2008
Júlía: “LAMBAKJÚKLINGUR!!!” (…um svínakótelettur)
***
24.05.2008
Júlía: “Hvar er hausinn á þessum hesti?”
Fjölskyldan er í heimsókn þar sem lítill gaur á leikfangabyssu og Júlía er ekki alveg að ná því hvað þetta er.
***
4.05.2008
Júlía: “Oj vont kornflex!”
Júlía: “Mamma vilt þú borða kornflexið?”
Mamma: “Nei takk”
Júlía: “Jú það er rosa gott, sjáðu bara” Tekur risa bita. “Nammmmmmm”
Mamma: Nei takk ómögulega, ég er að borða súrmjólkina mína”
Júlía: “Mamma viltu ekki smakka?”
Mamma: “Nei takk”
Júlía: “Bara pínkulítinn bita, sjáðu bara svona lítinn…”
Hvaðan ætli henni hafi dottið þessi samningatækni í hug…
***
01.05.2008
“Hjóla með rassinum pabbi!”
Júlía í hjólavagninum er ekki hrifin af því að pabbi sé að leiða hjólið.
***
23.03.2008
“FROSKAKANÍNAN!!!!” – Páskar og froskar eru svona “-ska” orð sem vefjast greinilega fyrir litlum stubbum, í ár kom semsagt froskakanínan hoppandi með páskaeggin.
***
16.02.2008
“UUUHH þungur kúkur”
Júlía á koppnum eftir að hafa krafist þess að mamma kæmi með.
Kúkurinn var, by the way, ansi stór.
***
13.02.2008
“Keyra stærra mamma!”
Júlía er komin með leið á að sniglast í umferðarsultu en kann ekki orðið “hratt”.
Eftir smástund kom síðan “Mamma er að keyra pínulítið”
Kann greinilega ekki “hægt” heldur.
***
25.01.08
Júlía: “Hvar er þumalputtinn mamma?”
Júlía er að troða sér í skrímslainniskóna hennar mömmu og ályktar að klærnar séu göt fyrir tærnar eins og á vettlingum og ætlar að passa að setja allar tær í rétt göt.
Mamma: “Það er enginn þumalputti á tám Júlía mín”
Júlía: “Mamma hvar er þumaltáin?”
***
13.01.08
Júlía: “Pabbi er ekki með klobba…. neeei…. Pabbi er með tappa!”
***
28.12.07
Júlía og pabbi eru sað staulast á jólaball frímúrara í nagandi frosti og roki, pabbi eitthvað að reyna að skýla Joð.
Júlía: “Það er rosalega kallt…. kallt og notalegt”
(Júlía tengir notalegt við hlýtt og notalegt, ekki alveg búinn að fatta meininguna ennþá)
***
18.12.2007
Júlía er að hoppa í sófanum með kúk í bleiunni.
Mamma: “Júlía, komdu nú og fáðu hreina bleiu”
Júlía: “NEI”
Mamma: “Jú, komdu nú litli stinker”
Júlía: “Komdu mamma”
Mamma: “Á ég að telja?”
Júlía: “Já”
Mamma: “Einn”
Júlía: “Tveir”
Mamma: “Júlía”
Júlía: “Komdu mamma, eins og skot!”
Stundum getur litli tveggjárlingurinn verið svolítið öfugsnúinn…
***
22.11.07
“RRRRRRRRRRROP” (Júlía ropar)
Júlía: “Júlía var að prumpa með munninum”
***
21.11.07
“Klípírass” segir pabbi við mömmu.
Júlía (sem sér sig knúna til að troða sér inn í þessa umræðu): “Nei, mamma með STÓRAN rass!” (hún hefur sennilega heyrt lítinn en ekki klípí)
Pabbi: “AAAHHHAHAHHAHAHA”
Júlía: “Pabbi með STÓRAN rass!”
Pabbi hættir að hlæja
Mamma: “En Júlía?”
Sér fyrir sér að rassar séu eitthvað sem er almennt stórt í Júlíuhuga.
Júlía: “Júlía er með pínkulítinn rass. Og lilla gúmman er með pínkulítinn rass”
Mamma og pabbi ákveða að ræða þetta ekkert nánar við Júlíu.
