magnusunna.com | … Júlía og Emilía

Um Okkur

BrúðkaupiðVið erum hjónin Sunna og Magnús.

Í stuttu máli þá erum við bændur á Saurum í Skagafirði, við rekum myndarlegt bú, 80 kýr rúmlega 200 kindur, nokkra hesta og eitthvað af fiðurfénaði, þó það lítið að varla tekur að nefna.

Við kynntumst í Bændaskólanum á Hvanneyri og það var ekki aftur snúið, ástin blossaði og höfum við nú eignast tvö lítil stúlkubörn, hana Júlíu litlu Jökulrós sem mun án efa koma til með að veita okkur mikla hjálp í fjósinu, hún er nú rúmlega tveggja ára og því vel orðin vinnuhæf í einfaldara störf. Systir hennar er svo ný að hún er undanþegin allri erfiðisvinnu eins og er þar sem hún er skilgreind sem kornabarn, en henni hefur verið gefið nafnið Emilía Snæbjörg.

Okkur þykir tilkoma alnetsins hin mesta búbót fyrir okkur þar sem við búum frekar afskekkt, nú geta vinir okkar og vandamenn og þið hin fylgst með því helsta sem er að gerast í sveitinni. Hér eru dagarnir samt hver öðrum líkari þannig að ekki er víst að þessi síða þarfnist nokkurar uppfærslu.

 

 

 

 

1 comment

  • tg · 24. 08 '06 #235 at 18:25

    röfl röfl flott síða hjá þér gamli

Leave a Reply

Theme Design by devolux.nh2.me