magnusunna.com | … Júlía og Emilía

Oct/07

22

Housing

raðhús á 2 hæðumAð kaupa hús er góð skemmtun. Eða í það minnsta að leita, við erum ekki búin að kaupa neitt ennþá, bara skoða. Helgarnar fara í bílferðir á milli borgarhluta hægri vinstri og við erum búin að skoða allar stærðir og gerðir af húsnæði. Þökkum bara Guði fyrir our precious litle TomTom

Við erum að spá í að vera með i a.m.k einu uppboði í vikunni. Hér í Svíþjóð virka fasteignaviðskipti nefnilega eins og uppboð, menn keppast við að yfirbjóða hvorn annan. Hingað til höfum við verið of nísk (skynsöm?) til að enda uppi sem hæstbjóðandi. Í deiglunni núna er raðhús á tveimur hæðum með tveimur gestaherbergjum. Okkur finnst nefnilega svo gaman að fá gesti og ennþá skemmtilegra þegar við þurfum ekki að horfa á þá í stofunni okkar :)

Vonandi förum við alla vega að finna eitthvað áður en Magnús fær magasár.

e.s við erum með nafn í mátun á litlu gúmmunni okkar, það er meira að segja vísbending um það í þessari færslu :D

No tags

20 comments

  • Sigurlaug · 22. 10 '07 #294 at 13:05

    UUhh enn spennó nýtt hús og nafnið.
    Þarf maður ekki að vera sleypur í sænskunni til að taka þátt í þessu húsauppboði eða er nóg að vera með númer og sveifla upp í loftið?
    Svo er bara komin dagsetning á jólahlaðborðið. Hlakka til að hitta ykkur þá:)
    Kveðja frá okkur.

  • Omi · 22. 10 '07 #294 at 13:33

    hiho
    alltaf gera thid thad jafn skemmtilegt ad lata umheimin fara ad leita hvad i oskupin nafnid a ad vera
    spennandi . Eg vona ad heilsan er farin ad koma til baka til Bromsteinsvagen

  • Berglind Rós · 22. 10 '07 #294 at 14:01

    Ég er nú búin að sjá vísbendinguna en tek mjög hóflega mikið mark á ykkur, ég lét ykkur teyma mig á asnaeyrunum með einhverjum gabb-vísbendingum síðast, en ekki aftur, óneiónei!!!

  • Sindri · 22. 10 '07 #294 at 14:19

    Ég hefði haldið að TomTom væri meira svona strákanafn.

  • Kristín belgur · 22. 10 '07 #294 at 16:06

    Hvað ætlið þið eiginlega að búa lengi þarna? Hélt maður væri ekkert að kaupa hús nema maður stefndi á mjööög langa dvöl!

    Húsmunda, Helga, Tumalína, Tómasína. Nei ég ætla að hætta að giska.

  • amma · 22. 10 '07 #294 at 16:06

    Samþykki ekki að barnið heiti fasteign. Að öðru leyti tek ég undir með Berglindi.

  • Author comment by Sunna Grimma · 22. 10 '07 #294 at 17:39

    Einhversstaðar verða vondir að vera… við seljum þá bara aftur, húsnæðislánin eru líka ekki eins asnaleg hérna og heima þannig þetta er alveg eins gott og að leigja.

    Og þið þarna, það var bara Magnús sem kom með bógus vísbendingar síðast, mínar voru allar sannar!

  • amma · 22. 10 '07 #294 at 19:14

    hmmmm. Ég hélt reyndar að ákvörðun lægi fyrir og ég réði þessu. hmmmm. Og ég man ekki að nein vísbending væri sönn og rétt, þetta voru allt villuleiðarvísar.

  • Author comment by Mangi Litli · 22. 10 '07 #294 at 19:59

    Þið eruð nú meiri lúðarnir, bara afþví að þið gátuð ekki ráðið vísbendingarnar mínar þá voru þær bógus?
    Ég get sagt það með samvisku sem eru hrein eins og klæði Maríu Meyjar að allar vísbendingarnar sem ég gaf síðast voru góðar og gildar.

  • Henning · 23. 10 '07 #295 at 01:30

    Einhverstaðar er talað um Guð í textanum…
    Þar geta m.a. verið nöfnin,
    Guðrún Magnúsdóttir
    Guðríður Magnúsdóttir
    Guðfinna Magnúsdóttir
    Guðmunda Magnúsdóttir
    Guðbjörg Magnúsdóttir
    Guðný Magnúsdóttir
    Guðlaug Magnúsdóttir
    Svo eitthvað sé nefnt.
    Svo ól náttúrulega kona nokkur fyrir alllöngu síðan son sem var/er talinn sonur Guðs. Og gæti því verið talað um Maríu Magnúsdóttur eða Magdalenu Magnúsdóttur.

    Jæja nóg um þsð.
    Bestu kveðjur frá Húsavík

  • María Ögn · 23. 10 '07 #295 at 13:18

    skal segja ykkur að ef littla gúmman hlýtur nafnið María þá verður það henni einungis til framdráttar og happs í lífinu! en hins vegar þá er ég nokkuð viss um að skammstöfunin verði ESM líkt og í e.s og því skít ég á Edda Sif Magnúsdóttir ;)

  • amma · 23. 10 '07 #295 at 15:36

    við hér í Hjallabrekkunni viljum fá nafnið uppgefið á undan sænsku skrifræðismafíunni. Takk fyrir!

  • Omi · 23. 10 '07 #295 at 15:49

    hahahahahahahahaha
    thad er Lottchen og med thad er thad komid.

  • Þórður Ingi · 23. 10 '07 #295 at 20:14

    Hahaha sénsinn Berglind að þú sért ekki að reyna að skrifa upp einhvern kóða til að ráða í vísbendinguna, nú á að leysa þetta, Marðarnúpsþrjóskan lætur ekki að sér hæða. En Bergsættarafslappelsið hefur betur í mér og ég bíð hinn rólegasti eftir tilkynningunni. P.s. gangi ykkur vel með húsleitina, þó vel hafi farið um mig í stofunni þá hljóma gestaherbergi vel :)

  • amma · 24. 10 '07 #296 at 09:52

    Vísbendingin er löngu ljós, alltof ljós. Við mæðgur sáum það strax og þegjum samhljóða.

  • Þórður Ingi · 24. 10 '07 #296 at 12:35

    Frændi sá einnig vísbendinguna og þegir sérhljóða.

  • Berglind Rós · 24. 10 '07 #296 at 19:05

    Þá þegi ég tvíhljóða, það verður líka að vera með

  • Auður · 26. 10 '07 #298 at 14:39

    Elsku Magnús, Sunna og dætur.

    Til hamingju með húsakaupin.:-)
    Enn og aftur nafnagetraun!!!!!
    Maður fær a.m.k. ágætis heilaleikfimi út úr þessum vangaveltum. Af fenginni reynslu þá tekur maður hæfilega mark á gefnum vísbendingum.
    En að því sögðu þá fáið þið mínar ágiskanir:”Guðmunda Sól, Aðalheiður Elsa eða Magdalena Lillý.”

    Óskum frekari vísbendinga, helst sannra vísbendinga. ;-)

    Með ósk um allt það besta, Guð geymi ykkur.
    Ástarkveðjur, Auður.

  • edda hrönn · 29. 10 '07 #301 at 16:58

    tí hí þettaer gaman… líst auðvitað vel á þann sem stakk uppá Eddu Sif, Edda Hrönn er líka fínt, já já þið megið alveg nota mitt nafn

  • e.s. at magnusunna.com · 11. 12 '07 #344 at 10:43

    [...] ársins fær María Ögn fyrir að ráða í vísbendinguna mína. [...]

Leave a Reply

<<

>>

Theme Design by devolux.nh2.me