13
Lilla Gúmman!!! mætt á svæðið
21 Comments · Posted by Mangi Litli in Emilía litla, Sunna og Maggi
Jæja gott fólk, þá hefur Bromsteinsvägsfjölskyldunni fjölgað svo um munar. Ávalt bætist í kvennabúrið hans Manga litla, en klukkan 06:55 að staðartíma þann 12.september síðastliðinn (í gær) fæddist okkur hjónum lítið og krumpað en að engu síður alveg gullfallegt stelpubarn.
Eftir grandskoðun kom í fljótlega í ljós að stelpurófan (sem fengið hefur vinnuheitið „lilla gúmman“) var hin sprækasta og taldi læknisfræðilega menntuð ljósmóðirin tíu fingur og tíu tær, einnig útskrifaði hún hana úr fæðingu með hæðstu mögulegu einkunn.
Forsagan er eitthvað á þessa leið.
11.09’07 16-17:30
Sunna, Magnús og Júlía fara í göngutúr um nærsveitir Spånga, en fyrir þá sem ekki vita er Spånga (heima þorp okkar og nágrannabær Stokkhólmsborgar) lítið fallgert fjallgert þorp og mikið um hóla og hæðir. Eftir göngutúrinn fór Sunna að sögn að finna lítillega fyrir samdráttarverkjum11.09’07 22:30
Pálmar kemur í heimsókn til okkar (já Amma Ingarósa, Hreinn pabbi hans Pálmars hefur verið bendlaður við Mánann leikfélag Hornfirðinga um árabil), tilefni heimsóknarinnar var að draga bílskrjóðinn okkar á verkstæði . Sunna greinir frá því að verki loknu (hún beið sko heima, meðan karlmennirnir sinna bílamálum) að verkir og samdrættir ágerist, samt ekki viss hvort þetta séu bara fyrirvaraverkir….12.09’07 01:30
Magnús situr í stofunni og er að klára að skrifa bréf til sænsku neytendasamtakana (skrifa opinbera kvörtun vegna loðinna bílaviðskipta) þegar Sunna tilkynnir honum að hún eigi erfitt með að festa svefn, Magnús spyr hvort þetta sé að gerast , enn er Sunna ekki viss. Magnús reynir að festa svefn…12.09’07 04:00
Sunna, liggur uppí rúmi við hlið Manga og ýtir við honum, samtalið er eitthvað á þessa leið:
Sunna: „Maggi, ég held að vatnið hafi farið..“
Mangi: „ertu viss?“
Sunna: „Já, annaðhvort það eða ég var að pissa á mig“
12.09’07 04:10
Enn eru allir pollrólegir, til að vera viss hringir Magnús á Danderyd sjúkrahúsið og greinir frá nýliðnum atburðum, þar er hann vandlega spurður staðlaðra spurninga og svarar eftir bestu getu, starfsstúlkan greinir frá því að við séum velkomin þegar hríðir koma með c.a. 5 mínútna millibili.12.09’07 04:30
Okkur er nú báðum orðið ljóst að ekki verður meira um svefn þessa nóttina (hvorugt reyndar búið að festa svefn). Fyrirframákveðin aðgerðaráætlun er formlega sett af stað, áætlunin kallast „Korpúlfsaðgerðin“. Verkirnir eru orðnir töluverðir og telur Magnús 3 mínútur milli verkja hjá Sunnu.
12.09’07 05:22
Magnús ræsir upp Pálmar og tilkynnir honum að enn og aftur þurfi hann á aðstoð hans að halda, Pálmar sem og Linda kona hans eru öll að vilja gerð og eru reyndar búin að undirbúa komu Júlíu segja okkur bara að renna við í leiðinni. Júlía er drifinn á lappir og þó rugluð til að byrja með verður hæstánægð með að fá að hitta hana Heklu Sól stórvinkonu sína.12.09’07 05:56
Rennum í hlað á Ripsstígnum hjá Lindu og Pálmari, Júlía er drifin inn ásamt óvernæt kittinu hennar og Pálmar tekur hennar stað, þau hjú hafa umráð með Júlíu og bílaleigubílnum á meðan.12.09’07 06:05
Sunna er skrifuð inn á fæðingadeild Danderyd sjúkrahússins. Fest er við hana línurit og teknar eru niður helstu upplýsingar. Verkir aukast og spennan vex. Útvíkkun mæld eru 6 sentimetrar.12.09’07 06:30
Vaktaskipti á sjúkrahúsinu, inn kemur hún Eva Björnsdotter, tröllvaxin og ófríð en einstaklega blíð ljósmóðir.
Nú engist Sunna sundur og saman af kvölum og Mangi bendir henni vinsamlegast á að hún verði nú að reyna að slaka á, og anda djúpt. Finnst honum gera afskaplega lítið gagn, hann fær þó að ríghalda í konu sína svo hún steypist ekki fram úr rúminu í verstu kviðunum en Sunna liggur að sögn öll skökk og skæld í rúminu. Hetjulega berst hún við löngun að rembast skv. fyrirmælum nærstaddra fagkvenna.12.09’07 06:48
Ljósmæður gera sér grein fyrir því að hér er engin meðalkona á ferð, hlutirnir gerast hratt hjá henni þessari. Sunna tilkynnir Magnúsi vandræðaleg milli hríða (sem eru núna c.a. 10sek) að henni líði eins og að hún þurfi að kúka. Sunna getur ekki haldið aftur af rembingnum og lætur vaða. Magnús útskýrir nærgætnislega fyrir Evu hvernig Sunnu líður en hún öskrar í því með sinni tröllskessu röddu „BEBIS KOMMER!!! JAG SER HUVUDET!!!“12.09’07 06:55
Þremur rembingum og heilmiklum látum síðar skýst út „lilla gúmman“
50cm og 3510gr (14merkur)
Næsta sólahring eyddum við svo á Fæðingarheimilishótelinu (3 stjörnur, grínlaust), höfðum það gott en erum nú komin heim. Allir hafa það fínt, Júlíu sækjum við svo á leikskólann á eftir, það verður gaman að sjá hvernig stóra systir tekur þessu öllu saman.
Hægt er að smella á myndina að ofan til að fá stærri útgáfu, myndir eru svo væntanlegar í albúmmið innan skamms.
No tags
21 comments
Leave a Reply
<< Myndirnar

Brynjar · 13. 09 '07 #255 at 12:36
Til hamingju með nýja fjölskyldumeðliminn!
Kveðjur frá Bæjaralandi.
Linda Kristín · 13. 09 '07 #255 at 12:43
Þetta var aldeilis greinargóð og skemmtileg lýsing hjá þér, Maggi. Það er ljóst að þú átt kraftmiklar stelpur! Enn og aftur til hamingju með gúmmuna. Við hlökkum til að kynnast henni.
kv.
Linda, Sindri & krakkalakkar
Kristín belgur · 13. 09 '07 #255 at 12:59
Innilega til hamingju með stelpuna.
Mæja · 13. 09 '07 #255 at 14:09
Innilega til hamingju með litlu gúmmuna
Hlakka til að sjá fleiri myndir 
Og stórskemmtileg lýsingin á þessu öllu saman
Puss og kram frá rokinu á klakanum
Jódís · 13. 09 '07 #255 at 14:18
Til hamingju elsku vinir:)
Kveðja úr Skerjafirði.
Stebbi · 13. 09 '07 #255 at 14:24
Til hamingju með stelpuna.
Frábær lýsing.
amma · 13. 09 '07 #255 at 14:30
Til hamingju enn og aftur elsku fjölskylda. Mikið hlökkum við til að hitta ykkur öll.
Björg Ýr · 13. 09 '07 #255 at 14:44
Velkomin í heiminn litla skonsa
Fridel · 13. 09 '07 #255 at 15:03
Þetta er æði. Til hamingju öll sömul. Hlakka til að sjá fleiri myndir.
Guðný Inga · 13. 09 '07 #255 at 15:13
Innilega til hamingju með fjölgunina, við bíðum ennþá hér en þetta fer að koma. Verst að ég skyldi tapa veðbankanum, ég veðjaði á pojke. Bestu kveðjur Guðný og fj.
Pálmar · 13. 09 '07 #255 at 17:08
Til hamingju Sunna, Maggi og Júlía Jökulrós með nýja fjölskyldumeðliminn. Og til hamingju með heimskomuna Manda. Það var virkilega gaman að fá J.J. í heimsókn, sérstaklega fyrir Heklu Sól sem lærði heilan helling af henni.
Hlökkum til að sjá meistarastykkið.
Kv. Pálmar, Linda og Hekla Sól
edda hrönn · 13. 09 '07 #255 at 20:08
hæ hæ, hjartanlega til hamingju með snúlluna, jmikið held ég að hún stóra systir sé stolt:-) kveðja austan frá Egilsstöðum Edda HRönn og Fjölskylda
Valur · 13. 09 '07 #255 at 20:32
Hjartanlega til hamingju.
Fridel · 14. 09 '07 #256 at 09:37
Myndir, myndir, myndir…. get ekki beðið mikið lengur eftir fleiri myndum
Kristín belgur · 14. 09 '07 #256 at 10:04
“…inn kemur hún Eva Björnsdotter, tröllvaxin og ófríð en einstaklega blíð ljósmóðir. ”
Maður væri nú alveg til í mynd af henni þessari líka
Svo ætlaði ég að betla aðgang að myndaalbúmunum ykkar til að geta skoðað dömuna betur.
Aftur til hamingju.
Hildur · 14. 09 '07 #256 at 10:13
Æðislegt! Til hamingju með skvísuna
Mjög skemmtilegt að lesa for- og fæðingarsöguna, takk fyrir hana! Mjög viðeigandi að fá svona sænska tröllkonu til að taka á móti flottri víkingastelpu frá alvöru konu!
Bestu kveðjur, Hildur (21v2d, haha) og co.
Gríshildur · 14. 09 '07 #256 at 10:42
Gummi Sævars · 14. 09 '07 #256 at 11:09
Til hamingju með nýja fjölskyldumeðliminn.
Gyða · 14. 09 '07 #256 at 13:01
Innilegar hamingjuóskir með stúlkuna. Mikið væri gott að þið væruð Egilsstaðabúar núna þar sem það telst til stórkostlegra tíðinda ef stúlkubörn fæðast í sveitarfélaginu. Gangi ykkur vel með stúlkurnar.
Kv. Gyða Lindu systir
Sigrún frænka í Ólafsvík · 18. 09 '07 #260 at 20:45
Hæ,hæ!
Big familie voða flottar og fínar systur til lukku með litlu prinsessuna.
Kveðja frá öllum í Ólafsvík.
John og Unnur · 26. 09 '07 #268 at 14:45
Innilegar hamingjuóskir
Huges and Kisses…
John og Unnur