Í tilefni af því að Júlía er nú byrjuð á sænskum leikskóla og mun fljótlega gleyma þeirri litlu íslensku sem hún kann er rétt að lista upp þau íslensku orð sem hún kann.
mama = mamma
baba = pabbi
lga = loka
dah = datt
bah = banani
bvah = vatn
takk = takk
aa detta = hvað er þetta
jla = júlía (reyndar eru allar myndir og veggspjöld júlía en það er önnur saga)
Held það séu ekki fleiri en svo eru dýrahljóðin að verða nokkuð þróuð hjá henni og bílarnir segja trrrrr.
No tags

tengdó · 18. 10 '06 #290 at 19:29
Þið eigið mig á fæti ef þið gerið barnið ekki altalandi á góða og hreina íslensku áður en við er litið. Svo er nú kannski rétt að gæta þess að hún verði ekki mjög blá og marin héðan í frá, við vitum að sænska velferðar- og eftirlitskerfið er mjög virkt. En ég reikna sem sagt með að hún verði altalandi, bæði á sænsku og íslensku, 18. nóvember nk.
Björg Ýr · 19. 10 '06 #291 at 11:13
Þetta er aldeilis fínn orðaforði.. Ég kem með Bergþóru í talkennslu til ykkar fljótlega.. en það ekkert hægt að skilja hana ennþá. fyrir utan mamma, pabbi og dudda..
Maggi yrði nú hamingjusamur með það .. hohoho
Kannski Bergþóra kenni Júlíu að segja dudda
Gríshildur · 19. 10 '06 #291 at 22:14
Er öruggt að hún sé ekki að segja tack?
Author comment by Sunna Grimma · 20. 10 '06 #292 at 08:42
þú segir nokkuð
mama = mamma
baba = pappa
bah = banana
bvah = vatten
takk = tack
aa detta = vad är det
hmmmm