magnusunna.com | … Júlía og Emilía

Sep/06

8

Besta dagmamman.

Það leikur enginn vafi á því í okkar huga hver er besta dagmamman í bænum. Hún Þórunn sem að Júlía er hjá er bara frábær.

Nú er Júlía greyið búin að vera slöpp og með hita í tvo daga en var aðeins skárri í morgun þannig við ákváðum að leyfa henni að fara til dagmömmunar for one last time.

Svo í morgun áður en við lögðum af stað þá var hún komin í stigann og hún Júlía mín veit sko ekkert skemmtilegra en að fara upp tröppur. Maður þarf alveg að draga hana í burtu organdi ef hún kemst af stað. Nema hvað, hún var lögð af stað upp stigan og ég kallaði á hana og spurði hvort hún ætlaði ekki að koma til Þórunnar dagmömmu. Og litlan mín sneri samstundis baki við tröppurnar og kom hlaupandi til mín á litlu fótunum sínum, skellihlæjandi af kæti.

Verst bara að við getum ekki bara tekið hana með okkur til Svíden.

 

No tags

No comments yet.

Leave a Reply

<<

>>

Theme Design by devolux.nh2.me