magnusunna.com | … Júlía og Emilía

May/06

14

Lítill súkkulaðigrís.

grísliÞegar ekkert heyrist frá Júlíu má bóka að hún er að gera eitthvað af sér (eins og öll önnur börn býst ég við). Ég var að lesa moggann inni í borðstofu þegar ég áttaði mig á að ekkert hafði heyrst frá litla orminum mínum í smá stund þannig að ég leit upp.

Barnið mitt var horfið og í staðin var kominn lítill súkkulaðigrís!

Við höfðum nefnilega verið með súkkulaðimola í skál á stofuborðinu sem ekki bara hafði gleymst að setja þar sem Júlía komst ekki í það með litlu krumlunum sínum heldur var það búið að vera í sólbaði í allan morgun og orðið að súpu.

Júlía stóð þarna með aðra krumluna á kafi í súpunni og að nota hina til að maka súkkulaði í andlitið sitt.

Jájá, maður byrjar aldrei of snemma að koma börnunum sínum upp á bragðið er það nokkuð?

No tags

3 comments

  • Gríshildur · 14. 05 '06 #133 at 16:48

    Ekki seinna vænna að læra að njóta þess besta sem lífið hefur upp á að bjóða… súkkulaði, namm namm :)
    Síðbúnar afmæliskveðjur til Manga gamla.

  • Björg Ýr · 15. 05 '06 #134 at 21:36

    mm súkkulaði :-)

  • Omi · 16. 05 '06 #135 at 12:10

    Thvi ekki thad? Madur verdi ad hjalpa sig sjalf ekki satt??????

Leave a Reply

<<

>>

Theme Design by devolux.nh2.me