magnusunna.com | … Júlía og Emilía

Nov/05

22

Í dag…

Hitt og þetta hefur verið skráð í annála þessa dags, má þar nefna lítt þekkta atburði eins og morðið á Edward Teach 1718, betur þekktum sem “Sjóræninginn Svartskeggur” (Blackbeard the Pirate).

S-O-S (. . . _ _ _ . . .) var samþykkt á alþjóðlegri fjarskiptaráðstefnu í Berlín sem alþjóðlegt neyðakall, þetta var árið 1906.
Járngribban Margret Thatcher tilkynnti afsögn sína úr stóli forsætisráðherra Breta ’99.

Sumir vilja minnast þess að þetta er dagurinn sem Kaþólikkinn Kenndy heitinn, fyrrverandi forseti BNA var myrtur þar sem hann rúntaði á blæjubíl um miðborg Dallas í Texas. Það er talað um þennan atburð sem einn af þeim fáu þar sem fólk segist geta staðsett sig mörg ár aftur í tímann (“ég var að blanda skyr í mjólkurbúðinni á laugaveginum þegar hann Kenniddí var skotinn”).
Sjálfur man ég nú ekkert eftir þessu enda kornungur maður. Af heimildum að dæma vilja menn meina að JFK hafi verið vænsti maður og einhverjir hafa jafnvel gerast svo djarfir að meina að Lee Harvey morðingi JFK hafi farið mannavillt og skotið vitlausan forseta á vitlausri öld (hann hefur að öllum líkindum ætlað að skjóta “vit-lausan” forseta)… það eru nú samt vangaveltur sem ekki er ráðlegt að ræða á þessum vettvangi.

Á þessum degi árið 1986 hampaði líka mannætan og tukthúslimurinn Mike Tyson yngstur allra heimsmeistaratitli þungavigtarhnefaleikum, aðeins tvítugur að aldri þegar hann lúskraði á Trevor Berbick í borg ljósanna Las Vegas.

Nú einnig var það á þessum degi árið 1955 sem RCA plötuútgáfufyrirtækið keypti útgáfuréttinn á músík vörubílstjórans Elvis Priestley fyrir $25.000, fékk vörubílstjórinn 5.000 dollara bónus við upphæðina til að kaupa bleikan kadiljálk handa mömmu sinni.

Það hefur einnig verið þingað mikið um það hjá hinum ýmsu ríkisstjórnum, víðsvegar um heimsbyggðina, að gera þennan dag að alþjóðlegum frídegi, en tilefnið er ekki af ómerkilegra taginu, halda upp á fæðingardag Sunnu Grimmu (Sunna the Grim), að sjálfsögðu styð ég þá tillögu heils hugar þar sem ég er svo lukkulegur að vera giftur henni.


Til hamingju með afmælið Sunna mín – x x x

No tags

15 comments

  • Admin comment by Rev. Desmond Tutu · 22. 11 '05 #325 at 10:45

    Congratulations Sunna, may the Gods give you prosperity and happyness for eternity.

    best regards,
    Desmond

  • Admin comment by DALI LAMA · 22. 11 '05 #325 at 10:46

    Sunna you ROCK!!!

  • Admin comment by Högni Haugdal · 22. 11 '05 #325 at 10:48

    Gleðilegur afmjaelisdagur Sunnlendingur!

    bk.
    Högni

  • Admin comment by Ariel Shalom ;) · 22. 11 '05 #325 at 10:52

    Happy birthday Súnna, hope you have a nice day, if you can find the time, please help us make peace down here in the middle east…
    Love and kisses
    Ariel

  • Gríshildur · 22. 11 '05 #325 at 11:09

    Húrra fyrir Sunnu, afmælisbarninu fagra :)

  • Admin comment by Halldór Ásgrímsson · 22. 11 '05 #325 at 12:37

    Fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og íslenzku þjóðarinnar viljum við óska þér innilega til hamingju með daginn Sunna!
    Þín bíður fálkaorða á skrifstofu forsætisráðuneytisins!

    Kveðja Dóri Gríms

  • Admin comment by Dórit Músafés · 22. 11 '05 #325 at 12:39

    Súnna, I want to be just like you!!!! Happy Birthday!!!

    regards
    ðe 1.st lady

  • Rósa Elísabet · 22. 11 '05 #325 at 15:09

    Ja hérna, maður þorir varla að tjá sig hérna innan um allt þetta fræga fólk… jæja, til hamingju samt með daginn Sunna frænka mín, ég er búin að syngja hátt og snjallt afmælissöng fyrir þig og kaupa handa þér harðan pakka (mamma keypti bara mjúkan pakka sem mér fannst ekki nógu gott).

  • amma · 22. 11 '05 #325 at 15:34

    Til hamingju Sunna mín. En hvernig er það með eiginmanninn – hefur hann ekkert að gera í vinnunni?

  • Author comment by sunna grimma · 22. 11 '05 #325 at 15:51

    Takk krúttin mín, ég verð bara hrærð að fá allar þessar góðu kveðjur :D

  • Björg · 22. 11 '05 #325 at 16:58

    til hamingju með afmælið elsku Sunna mín :) Kossar og knús

  • Jón hundur · 22. 11 '05 #325 at 21:43

    heyrðu………….það var nú ekki mikill matur í þessari veislu

  • Gjorgensolaz · 22. 11 '05 #325 at 21:45

    til lukku með þennan mikla árangur í lífinu til þessa…….

  • Admin comment by Tuðmundur · 25. 11 '05 #328 at 00:21

    …hann hefur sko nóg að gera í vinnunni, en það er nú lágmark að hann skrifi afmæliskveðju fyrir frúnna sína, það finnst mér a.m.k. en hvað veit ég svosem ég er bara Tuðmundur…

  • í dag… at magnusunna.com · 22. 11 '06 #325 at 14:11

    [...] Hér gefur að líta ýmsa þá atburði sem gerst hafa á þessum degi en vert er að bæta við nokkrum sem ekki hafa verið til taldir: [...]

Leave a Reply

<<

>>

Theme Design by devolux.nh2.me