magnusunna.com | … Júlía og Emilía

Jan/10

19

Gaman í sundi

Magnús stingur sér tigullega til sunds...Nú er Pipersväg fjölskyldan loksins búin að prófa að fara í sund í Svíþjóð, eftir aðeins rúmlega þriggja ára dvöl hér.
Stefnan var tekin á Mörbybadet sem má segja að sé í nánasta nágreni við Pipersväg ásamt okkar kæru grönnum og vinum, Lindu, Pálmari og Heklu og okkar kæru vinum Gumma, Rakel og Lilju Marín.

Það sem var einna áhugaverðast við þessa sundferð var að við fengum að sjá börnin okkar í öllum regnbogans litum.
Fyrst voru þau venjuleg. Svo urðu þau öll blá þar sem vatnið í lauginni var með svipað hitastig og Norður Atlantshafið um hávetur. Og svo urðu þau rauð og bleik þegar við fórum með þau í gufuna til að hita þau aftir upp.

Það sem var ennþá áhugaverðara var að öll börn skemmtu sér mjög mjög vel og geta ekki beðið eftir að fá að fara aftur hvað svo sem foreldrunum finnst um það…

No tags

1 comment

  • amma · 19. 01 '10 #18 at 17:25

    Hvar eru myndirnar á nýju fínu heimasíðunni?

Leave a Reply

<<

>>

Theme Design by devolux.nh2.me