magnusunna.com | … Júlía og Emilía

Jan/10

12

Frosthörkurnar halda áfram í Svíaríki

Já við vitum öll hvað gerist, sum af reynsluEn við getum víst prísað okkur sæl miðað við annarsstaðar í Evrópu en hér er frostið ekki nema -10°C í dag.

Í fyrradag gerði smá lát á frostinu, niður (upp?) í -6°C og fjölskyldan lagði upp í langferð yfir ísinn til að sækja vistir. Sú ferð gafst vel og snerum við heim með ný hlý föt, kökudropa og troðfulla maga af súkkulaði.

Í dag prófaði Júlía svo hands on (eða réttara sagt tounge on) hvað gerist þegar járn er sleikt í frosti. Fréttaritari var ekki á staðnum en áræðanlegar heimildir herma að sú stutta hafi sloppið tiltölulega ósködduð og hafi ekki skilið of mikið af tungu eftir á staurnum. Vonum bara hún læri af reynslunni…

No tags

No comments yet.

Leave a Reply

<<

>>

Theme Design by devolux.nh2.me